Wednesday, June 14, 2006

Fundur

Hæ hæ long time no see, jæja þá er komið að því....ég og Kiddi viljum halda bókafund heima hjá okkur á laugardag....ef einhver er ekki hrifin af dagsetningunni endilega látið okkur vita og við reynum þá að finna einhverja aðra dagsetningu sem hentar öllum ;)

Thursday, May 25, 2006

hmmm

Þetta gengur ekki lengur, við erum ekkert smá ódugleg við þetta, ég og Kiddi höfum ágæta afsökun erum að fara flytja eftir viku, þannig að við erum búin að vera busy að gera ekki neitt, en það fer að hellast yfir að við verðum að vera dugleg. Mér finnst fólk bara ekki nógu duglegt að koma með hugmyndir að einhverju, og láta vita hvernig gangi að lesa um djöfulinn, mér gengur ekkert alltof vel með good omens en það er að koma, hvað með ykkur er einhver annar byrjaður á einhverri góðri bók?
En jæja ég lofa að það verður haldin fundur heima hjá okkur þegar við erum búin að koma okkur fyrir og það verður allt sómasamlegt í íbúðinni, en jæja þangað til næst....allir að vera duglegir að lesa.

Thursday, May 18, 2006

I´m BACK!

Vampirebunny bookclub
HÆHÆ þetta er Bella hérna loksins fékk ég eithvern til að koma frá símanum og laga fyrir mig netið! Þetta var bara eithvað sambandsleysi á milli módemsins og stöðvarinar! Svo nú get ég farið á netið aftur! Sem betur fer kom hann í dag því þetta er ekki búin að vera góður dagur hjá mér er búin að vera að vinna mikið og sofa lítið en þið vitið nú allveg hvernig það er er það ekki! Svo í þokka bót þurfti ég að fara að vinna með henni MADDY (talk about a bummer) og það var ekkert að gera í vinnunni eins og vannalega! Það versta af öllu var að fyrirtíðarspenna var farin að segja til sín svo ég var við það að springa en allt endaði þetta nú vel!
Kveðja
ykkar einlæga
Bella

Thursday, April 27, 2006

Hvar er hægt að nálgast bækur ?


Flestar af þeim bókum sem við lesum/munum lesa er auðvelt að útvega. Þessar bækur eru flestar til á bókasöfnum (farið inná www.gegnir.is og leitið þar að eintaki - ef frekari upplýsingar er þörf, shout out !!! :) Og ef þær eru ekki til á bókasöfnum, þá er annars hægt að nálgast bækurnar hjá öðrum meðlimum eða keypt þær....Nexus eru ódýrastir í fantazy og vampire bókunum....En ég mæli aðalega með bókasöfnum ;)

Ef við veljum einhvern tímann galdrakalla (Bera saman Harry Potter og Lord Darcy ;), þá vel ég þennan "wizard"...

Harry Dresden, the 'anti-hero' of the book is a detective who is also a licensed wizard. Unlike Randall Garrett's Lord Darcy, however, Harry is more of a gumshoe than an aesthete. He's like a combination of Phillip Marlowe and Glen Cook's Garrett, P.I. Think of him as a magic wand with an attitude. A thirty pound cat with half a tail and an oversexed skull in his basement don't help his image either. He makes a thin living finding the lost and helping the police, despite being the only wizard listed in the Chicago Yellow Pages

Ut að borða??

Jæja hvað segja allir gott? Það hafa nánast allir virkt sinn aðgang inn á síðuna....sá eini sem er eftir er hún Ísabella...skamm skamm, það verður greinilega að fara ýta smá við henni.
Ég hef líka fengið að frétta af að mikill áhugi er fyrir því að gerast meðlimur í þessum bókaklúbb, og vil ég leggja það undir nefnd hvort þessir einstaklingar fá aðild...en þeir eru Maggi Ramirez og kærastinn hans (ég man ekki í þessu augnabliki hvað hann heitir..sorry) en já allir sem vilja fá þá eða ekki fá þá í klúbbinn, láta vita :).
Og endilega látið vita af rithöfundum sem þið viljið láta bæta inn á síðuna, um að gera að gera þetta að flottri síðu.
Ég legg til að fyrir næsta fund verði þemað djöfullinn...þannig að endilega finnið einhverja bók um hann eða bók þar sem hann er karakter, t.d. eins og Meistarinn og Margaríta eða I, Lusifer og jafnvel einhverja bók um goðsögnina í kringum hann og endilega komið með gagnrýni og ykkar álit á þeim bókum sem þið völduð.
Og svo verðum við að fara halda annan fund....við vorum einmitt að pæla hvort við gætum ekki öll farið út að borða á laugardag, ekki fund en bara að fara út að borða saman, Maggi og hans partner eru velkomnir og svo ætlum við að bjóða vinum hans Kidda líka reyna að fá eins marga og við getum, bara til að spjalla og hittast og jafnvel ákveða hvenær næsti fundur verður haldinn.....en jæja ég er bara farin að babla hérna, þannig að ég kveð og vonandi verðið þið dugleg að lesa og blogga.

Monday, April 24, 2006

loksins

jæja þá er þetta komið loksins og Tinna getur andað rólegra og hætt að bögga mig :Þ


djók

Saturday, April 22, 2006

Hæ Tinna hleypti mer inn ;)

Þetta er æðisleg síða og við eigum eftir að gera margt skemmtilegt á henni. Hlakka til að byrja á að fylla inná hana. Næsti verður þó talað meira um bækurnar hehe,,,,,, ceja.

Friday, April 21, 2006

Breytingar

Jæja nú er ég búin að vera breyta smá og koma inn tenglum og svoleiðis, endilega látið mig vita ef þið viljið breyta einhverju.
Það ætti nú að vera auðvelt að ákveða eitthvað ef allir koma með hugmyndir